Vitadagar 2026 - undirbúningur er hafinn
Undirbúningur fyrir Vitadaga 2026 stendur nú sem hæst en dagana 24.–30. ágúst mun Suðurnesjabær taka á sig hátíðlegan svip þegar bæjarhátíðin Vitadagar – hátíð milli vita fer fram. Dagskráin er óðum að taka á sig mynd en enn er þó svigrúm til að bæta við smærri viðburðum, við hvetjum sérstaklega til viðburða sem íbúar skipuleggja og halda utan um sjálfir.
Ert þú með hugmynd að uppákomu? Það þarf ekki að vera stórt eða flókið. Sendu okkur þá línu á vitadagar@sudurnesjabaer.is sem allra fyrst.
Vitadaga-fánar til sölu
Líkt og í fyrra verður boðið upp á sölu á Vitadaga-fánum fyrir íbúa, fyrirtæki og aðra sem vilja setja skemmtilegan svip á umhverfið sitt meðan á hátíðinni stendur. Á fánanum er Vitadaga-merkið ásamt textanum „Vitadagar – hátíð milli vita“.
Upplýsingar um fánana:
- Stærð: 120 × 170 cm
- Prentaðir á slétt efni
- Fánakrækjur fylgja
- Verð: 11.000 kr. stk.
Hægt er að leggja inn pöntun á Vitadaga-fána nú þegar . Fánarnir verða afhentir fyrir Vitadaga, nánari upplýsingar um afhendingu verður auglýst síðar. Umsóknir þurfa að berast fyrir 10.ágúst næstkomandi.
Sölubásar og söluvagnar/bílar
Hátíðarsvæðið á laugardeginum 29.ágúst verður við Sandgerðisskóla í ár og höfum við opnað fyrir bókanir á sölubásum. Í boði verður að vera með sölubás innandyra í Sandgerðisskóla eða söluvagn/bíl á útisvæðinu.
Umsóknir skulu berast fyrir 10.ágúst næstkomandi.
Litaskipting
Eitt af því sem gerir Vitadaga eftirminnilega er þegar íbúar taka þátt í að skreyta nærumhverfi sitt og skapa hátíðarstemningu í hverfunum. Líkt og undanfarin ár hefur bænum verið skipt upp í litasvæði og hvetjum við íbúa til að kynna sér hvaða litir tilheyra þeirra götu og nýta sumarið í að huga að skreytingum. Með fréttinni fylgja myndir sem sýna litaskiptingu hverfa í Garði og Sandgerði. Við munum síðan að sjálfsögðu verðlauna fyrir best skreyttu húsin.
Við viljum benda íbúum á að fylgjast með Facebook síðu Vitadaga en þar koma reglulega inn upplýsingar fram að hátíð.