Umhverfisdagar - 21.-22. maí 2026
Íbúar Suðurnesjabæjar eru margir hverjir komnir á fullt skrið við að taka til við hús sín, lóðir og nærumhverfi. Á umhverfisdögum ætlum við að gera enn betur og taka höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið.
Íbúar eru hvattir til að klippa tré, raka lauf og hreinsa til á lóðum sínum. Einnig hvetjum við íbúa til að kíkja út fyrir lóðamörkin, á næsta göngustíg eða útivistarsvæði.
Hægt er að óska eftir aðstoð við að fjarlægja það sem til fellur með því að hafa samband við Umhverfismiðstöð í síma 425 3045 eða senda póst á eyjolfur@sudurnesjabaer.is. Skilyrði er að rusl sé snyrtilega frágengið í pokum og komið fyrir á lóðarmörkum.
Einnig viljum við minna á að losunarstaður fyrir garðaúrgang er á tveimur stöðum í Suðurnesjabæ, ofan við Háteig í Garði og ofan Byggðavegar í Sandgerði.
Fyrir förgun á öðrum úrgangi og rusli er íbúum bent á móttökustöð Kölku í Helguvík þar sem opnunartíminn er eftirfarandi:
- Mánudagur – Föstudagur kl. 10:00-18:00
- Laugardagur kl. 11:00-16:00
- Sunnudagur - Lokað
Vægt gjald er tekið fyrir förgun á úrgangi hjá Kölku, hægt er að sjá verðdæmi á nokkrum hlutum til flokkunar með því að ýta á hnappinn hér að neðan.
Verðdæmi á endurvinnslustöðvum Kölku
Tökum höndum saman, fegrum umhverfi okkar og hjálpumst að við að gera bæjarfélagið okkar snyrtilegra.