Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026

Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026

Kjörskrá og kjörstaðir í Suðurnesjabæ

Kjörskrá í Suðurnesjabæ vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 16. maí 2026, liggur frammi almenningi til sýnis í ráðhúsunum í Garði og Sandgerði frá 24. apríl og fram að kjördegi.

Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Einnig er bent á kosning.is - Hvar á ég að kjósa.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár .

Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla.

Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum 250 og 251 Garður er í Gerðaskóla.

Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.

Kjördagur sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026.

Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.

Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla sími 899-6317

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar