Fara í efni

Sumarlestur

Sumarlestur

Bókasafn Suðurnesjabæjar býður börnum á grunnskólaaldri í Garði og Sandgerði í Suðurnesjabæ að taka þátt í sumarlestri á bókasafninu frá 20. maí – 20. ágúst.
Það má byrja hvenær sem er á þessu tímabili.

Í ár verður sumarlesturinn með tvennskonar þema: Geimlestrarleiðangurinn og Ferðalag með Gúnda geithaf. Dregnir verða út vinningar á 2 vikna fresti úr happamiðum sem þátttakendur hafa skilað á safnið eða í skilakassa í íþróttahúsinu í Garði. Viðburðir á sumarlestri eru auglýstir á Facebook síðu safnsins og á heimasíðu Suðurnesjabæjar. Lokahátíð í sumarlestrinum verður haldin í upphafi Vitahátíðar þann 24. ágúst á bókasafninu.

Hvernig á að skrá sig: þau börn sem vilja taka þátt koma á Bókasafn Suðurnesjabæjar við Suðurgötu í Sandgerði þar sem þau skrá sig með samþykki foreldra og fá leiðbeiningar, happamiða og fleira sem tilheyrir sumarlestrinum. Það kostar ekkert að vera með í sumarlestri.

Börn sem búa í Garðinum geta skilað happamiða í skilakassa í anddyri íþróttahússins í Garði og einnig geta þau skilað bókum sem þau hafa fengið úr skólabókasafni Gerðaskóla og bókum sem þau fá lánaðar á Bókasafni Suðurnesjabæjar í Sandgerði.

Bókasafnið er í samstarfi við Bókasafn Reykjanesbæjar um Geimlestrarleiðangurinn og er sá hluti sumarlestursins styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 til 17:30 og föstudaga frá kl. 10-12.