Starfsmaður í íþróttamiðstöð
		Starfsmaður í íþróttamiðstöð	
	
			
					07. september 2022			
	
	Laus er til umsóknar 86 % tímabundin staða við Íþróttamiðstöðvar Suðurnesjabæjar en í starfinu felst m.a. klefavarsla í kvennaklefum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri, lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund og baðstöðum.
Í starfi sundlaugarvarðar felst m.a:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
 - Klefavarsla í kvennaklefum/baðvarsla/gangavarsla/ rýmisvarsla.
 - Baðvarsla
 - Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
 - Þrif.
 
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
 - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
 - Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
 - Tölvukunnátta
 - Hreint sakavottorð.
 
Laun taka mið af starfsmati og kjarasamningum viðkomandi BSRB/ASÍ félaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Einar Karl Vilhjálmsson, í síma 692-8527 eða í tölvupósti á netfangið einarkarl@sudurnesjabaer.is
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2022.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið einarkarl@sudurnesjabaer.is