Samstarf Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga
Samstarf Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og um fræðsluþjónustu.
Undirritaðir hafa verið samningar milli Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga um framhald á góðu samstarfi sveitarfélaganna undanfarin ár. Annars vegar um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk og hins vegar um fræðsluþjónustu. Sveitarfélögin hafa í allmörg ár átt í mjög góðu og árangursríku samstarfi um þessa málaflokka.
Í samningi um félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu og þjónustu við fatlað fólk kemur meðal annars fram að Suðurnesjabær taki að sér verkefni fyrir Sveitarfélagið Voga, þannig að sveitarfélögin mynda sameiginlegt þjónustusvæði um þá málaflokka sem samningurinn nær yfir. Suðurnesjabær er leiðandi sveitarfélag á þjónustusvæðinu og veitir íbúum sem eiga lögheimili í aðildarsveitarfélögum samningsins þjónustu eins og nánar er kveðið á um í samningnum. Þjónusta innan svæðisins er veitt á jafnræðisgrundvelli og byggja ákvarðanir um veitingu hennar á mati á þjónustuþörf.
Samningurinn gildir frá 1.júlí 2026 og á sama tíma fellur úr gildi samningur um þessa málaflokka frá 20.ágúst 2020. Samstarf sveitarfélaganna um þessa málaflokka hefur staðið í yfir 20 ár.
Sveitarfélögin gerðu með sér samning árið 2023 um aðkeypta þjónustu Sveitarfélagsins Voga af fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar. Samningurinn hefur loka gildistíma 30.júní 2026. Undirritaður hefur verið viðauki við framangreindan samning, þannig að gildistími hans er framlengdur til 30.júní 2027. Á tímabilinu þar til verður unnið að uppfærslu á þjónustusamningnum með það að markmiði að samningur um fræðsluþjónustu gildi til lengri tíma.
Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar og Guðrún P Ólafsdóttir bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga undirrituðu samningana fyrir hönd sveitarfélaganna.