Opnun heilsugæslu í Suðurnesjabæ
Í dag miðvikudaginn 4. júní 2025 var formleg opnun heilsugæslu í Vörðunni að Miðnestorgi 3 í Sandgerði. Íbúar sveitarfélagsins hafa ekki í langan tíma átt þess kost að sækja heilsugæsluþjónustu í heimabyggð, en nú hefur orðið ánægjuleg breyting á því.
1.ágúst 2024 undirrituðu Willum Þór Þórsson þáverandi heilbrigðisráðherra, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri HSS og Magnús Stefánsson bæjarstjóri Suðurnesjabæjar viljayfirlýsingu um opnun heilsugæslu í Suðurnesjabæ. Þá var sett það markmið að heilsugæslan opnaði ekki síðar en 1. maí 2025, þannig að verkefnið hefur gengið vel fyrir sig og nánast staðist tímaáætlun.
Opnun heilsugæslu í Suðurnesjabæ er mikið ánægjuefni og mikilvæg fyrir í búa sveitarfélagsins. Bæjaryfirvöld hafa í langan tíma barist fyrir því að þetta verði að veruleika og er öllum þeim sem komið hafa að því máli þakkað fyrir þeirra framlag. Íbúum Suðurnesjabæjar hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og er allt útlit fyrir að sú þróun haldi áfram og því mikilvægt að auka við alla nauðsynlega þjónustu við íbúa í ört stækkandi sveitarfélagi.
Framkvæmdir við standsetningu húsnæðis heilsugæslunnar voru á höndum Braga Guðmundssonar byggingarverktaka, hans starfsmanna og undirverktaka. Sérstakar þakkir eru til þeirra allra fyrir frábært verk, enda er húsnæðið hið glæsilegasta. Hönnun, eftirlit og utanumhald var í höndum starfsmanna HSS og Suðurnesjabæjar, þeir fá einnig góðar þakkir fyrir vel unnið verk.
Það er ánægjulegt að þetta baráttumál er í höfn. Íbúar Suðurnesjabæjar eru hvattir til að nýta þá þjónustu sem heilsugæsla HSS í Suðurnesjabæ býður upp á, enda er hún fyrst og fremst í þágu þeirra.
Frekari upplýsingar um þjónustu heilsugæslunnar í Suðurnesjabæ eru á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, hss.is. Þar má einnig finna upplýsingar um hvernig íbúar geta skráð sig í þjónustu heilsugæslunnar.