Nýtt mælaborð styrkir barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar
KPMG hefur í samstarfi við Suðurnesjabæ þróað nýtt stafrænt mælaborð fyrir barnaverndarþjónustu sveitarfélagsins. Mælaborðið byggir á verklagi og gögnum sem þjónustan hefur nýtt árum saman, en er nú komið í stafrænt og aðgengilegt form sem eykur yfirsýn, stuðlar að bættri ákvarðanatöku og skýrari samskiptum.
Verkefnið var unnið í nánu samráði við starfsfólk barnaverndar og endurspeglar þarfir og aðstæður á svæðinu. Það er sérstaklega ánægjulegt að sú kerfisvinna sem hefur verið byggð upp í Suðurnesjabæ gegnum árin skuli nú hafa orðið grunnur að lausn sem hefur möguleika á að nýtast á landsvísu.
Mælaborðið veitir rauntímaupplýsingar um þróun mála og álag í þjónustu, sem styður við faglegt mat og forgangsröðun. Þetta er mikilvægt skref í átt að gagnadrifinni stjórnun þar sem upplýsingar eru nýttar markvisst til að bæta þjónustuna.
Upptöku af morgunverðarfundi sem haldinn var 19. Júní 2025 má finna á síðu KPMG