Fara í efni

Nýjar grenndarstöðvar með bættri þjónustu og auknu flokkunarmagni

Nýjar grenndarstöðvar með bættri þjónustu og auknu flokkunarmagni

Vinnu við endurbætur á grenndarstöðvum er nú lokið og nýjar grenndarstöðvar verið teknar í gagnið. Stöðvarnar hafa fengið algjörlega nýtt útlit sem gerir aðgengi skýrara og notkun einfaldari.

Markmiðið með breytingunum er að bæta þjónustu við íbúa, auka möguleika á flokkun úrgangs og gera íbúum kleift að flokka meira af úrgangi nær heimili sínu – sem er forsenda þess að ganga lengra í átt að hringrásarhagkerfi.

Ein stærsta breytingin felst í því að nú taka grenndarstöðvarnar við átta flokkum úrgangs í stað fjögurra áður. Síðar bætist við níundi flokkurinn fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir, allur ágóði af söfnun þeirra rennur óskiptur í barnastarfi Reynis/Víðis.

Af hverju að breyta grenndarstöðvunum?

  • Aukin þjónusta með fjölgun flokka.
  • Smærri ílát undir efni sem safnast hægt (t.d. málmar og gler).
  • Ódýrari ílát sem taka minna pláss. Tíðari tæming.
  • Stærri ílát undir pappa/pappírsefni og plast. Þau efni safnast hraðast.
  • Fatagámar komnir á stöðvarnar. Samstarf við Rauða krossinn á Suðurnesjum.
  • Rafhlöðum er nú safnað á grenndarstöðvum. Til skoðunar er að bæta við ílátum undir smáraftæki.
  • Tekið er við kertavaxi og postulíni
  • Skilagjaldsskyldar umbúðir, allur ágóði af söfnun þeirra rennur óskiptur í barnastarfi Reynis/Víðis. (Kemur síðar)

Grenndarstöðvarnar eru staðsettar við Gerðaveg 11 og Strandgötu 17.