Fara í efni

Móttaka framboðslista 2026

Móttaka framboðslista 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16.maí 2026.

Frestur til að skila framboðslistum er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10.apríl. Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl.11:00 til kl. 12:00 í Samkomuhúsinu í Sandgerði, Norðurgötu 18.

Skilyrði framboðslista

Samkvæmt samþykkt um stjórn Suðurnesjabæjar nr. 450/2018 skal bæjarstjórn skipuð af níu fulltrúum. Á framboðslista skulu því vera að lágmarki 9 nöfn og að hámarki 18 nöfn.

Framboðslista skal fylgja

  • Skrifleg yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi samþykkt að vera á listanum.
  • Meðmæli a.m.k. 40 kjósenda í Suðurnesjabæ. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista.

Nánari upplýsingar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram er að finna á kosning.is.

Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar