Lækkun á gjaldskrá Suðurnesjabæjar
Lækkun á gjaldskrá Suðurnesjabæjar
08. maí 2026
Á 189.fundi bæjarráðs var samþykkt samhljóða að lækka ákveðna þætti í þjónustugjaldskrá Suðurnesjabæjar sem snúa að barnafjölskyldum, sem liður í því að styðja við verðbólgumarkmið og létta undir með heimilum í Suðurnesjabæ.
Eftirfarandi þjónustuþættir verða lækkaðir um 3% frá og með 1.júní nk.
- Tímagjald leikskóla
- Fæðisgjald leikskóla
- Vistunargjald skólasels
- Tímagjald skólasels
- Fæðisgjald skólasels
- Námsgjald Tónlistarskóla
- Hljóðfæraleiga Tónlistarskóla
Með þessu vill Suðurnesjabær leggja sitt að mörkum við að draga úr verðbólguþrýstingi ásamt því að tryggja barnafjölskyldum hagstæðar gjaldskrár og veita góða þjónustu.