Kveðja frá verðandi bæjarstjóra
Kæru íbúar.
Senn líður að því að ég hefji störf sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Það er mikill heiður og ábyrgð sem fylgir því að fá þetta tækifæri.
Ég hef alla tíð haft áhuga á samfélagsþróun og uppbyggingu innviða. Nýlega skrifaði ég pistil um mikilvægi hafna sem innviða og þau tækifæri sem geta skapast þegar horft er til framtíðar með skýrri sýn og langtímahugsun í verki. Þótt pistillinn fjalli um hafnir snýst hann í raun um það hvernig samfélög byggja á styrkleikum sínum og skapa forsendur fyrir verðmætasköpun og auknum lífsgæðum. Pistilinn má lesa hér.
Á næstu vikum og mánuðum hlakka ég til að kynnast samfélaginu, hitta sem flesta og heimsækja starfsstöðvar, fyrirtæki og stofnanir. Hver sá sem býr og starfar í Suðurnesjabæ hefur mikilvæga sýn á sitt samfélag og á þá framtíð sem við viljum byggja.
Suðurnesjabær hefur alla burði til að vera meðal framsæknustu sveitarfélaga landsins. Til þess þarf að nýta þá styrkleika sem þegar eru til staðar, vinna markvisst að sameiginlegum markmiðum og skapa umhverfi þar sem hugmyndir fá að verða að veruleika. Ég hlakka til að taka þátt í þeirri vegferð með ykkur.
Þegar við byggjum á því sem sameinar okkur, tölum af metnaði fyrir hönd sveitarfélagsins og vinnum saman að skýrri framtíðarsýn, skapast bestu forsendurnar fyrir áframhaldandi sókn. Ég trúi því að sá tími sé núna.
Eigið gleðilegt sumar!
Alexandra Jóhannesdóttir