Hopp-hjól í Suðurnesjabæ
Í sumar fer fram tilraunaverkefni þar sem rafskútur Hopp verða í boði fyrir íbúa og gesti Suðurnesjabæjar samkvæmt ákvörðun sem tekin var á 192. bæjarráðsfundi Suðurnesjabæjar.
Verkefnið er sveitarfélaginu að kostnaðarlausu en leigan fer fram í gegnum smáforrit í snjallsíma þar sem notendur geta séð staðsetningu næstu lausu rafskútu. Stoppistöðvar verða settar upp á nokkrum stöðum til þess að stuðla að betri umgengni og draga úr líkum á að rafskúturnar verði fyrir gangandi, hjólandi eða akandi umferð. Notendur eru sérstaklega hvattir til að skilja við rafskúturnar með ábyrgum hætti og þannig að þau séu ekki í vegi fyrir annarri umferð.
Verkefnið á að auka fjölbreytni í umhverfisvænum samgöngumátum í Suðurnesjabæ með því að bjóða upp á umhverfisvænan valkost fyrir styttri ferðir innan sveitarfélagsins. Vakin er athygli á því að samkvæmt notendaskilmálum Hopp þurfa notendur að hafa náð 18 ára aldri.