Fara í efni

Heitavatnslaust mánudaginn 14. júní frá kl.22:00

Heitavatnslaust mánudaginn 14. júní frá kl.22:00

Fréttatilkynning frá HS Veitum.

Lokað verður fyrir heitt vatn vegna endurnýjunar stofnlagnar við dælustöð á Fitjum mánudaginn 14. júní kl. 22:00.

Lokað verður fyrir vatnið í Suðurnesjabæ, Keflavík, Ytri og Innri Njarðvík og Vogum.
Við hvetjum viðskiptavini sem eru með hringrásadælu á hitakerfi að taka þær úr sambandi á meðan að enginn þrýstingur er á kerfinu.

Gert er ráð fyrir að lagnavinnu ljúki um nóttina og að eðlilegur þrýstingur verði kominn á að morgni þriðjudagsins 15. júní.

Við sendum skilaboð (SMS) og eða tölvupóst á viðskiptavini sem hafa skráð þær upplýsingar hjá okkur. Skrá má símanúmer og netföng á Mínum síðum HS Veitna.

Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem af þessu geta skapast.

Sjá frétt inn á heimasíðu HS Veitna - Viðhald og bilanir.