Fara í efni

Gauksstaðir – Tillaga að deiliskipulagi

Gauksstaðir – Tillaga að deiliskipulagi

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar, samþykkti 3. júní 2026 tillögu að deiliskipulagi við Gauksstaði L196408 og að deiliskipulagið verði sent til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun, í samræmi við 1.mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Farið hefur verið yfir framkomnar athugasemdir við deiliskipulagstillöguna og gerðar tillögur að svörum og viðbrögðum við þeim, sem verða sendar þeim aðilum er sendu inn umsagnir og/eða gerðu athugasemdir við deiliskipulagstillöguna.

Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun til yfirferðar og hægt er að nálgast hana ásamt fylgigögnum í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar.

Suðurnesjabær 5. júní 2026

Jón Ben. Einarsson, skipulagsfulltrúi