Fara í efni

Garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja sumarið 2026

Garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja sumarið 2026

Eins og fyrri ár mun Suðurnesjabær bjóða eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í sveitarfélaginu upp á garðslátt í heimagörðum.

Sláttutímabilið er frá byrjun júní og til loka júlí. Hver umsækjandi nýtur garðsláttar einu sinni en markmið er að slegið verði þrisvar sinnum hjá hverjum og einum, allt eftir samkomulagi og stöðu mannafla hjá sveitarfélaginu.

Ekki verður farið inn á lóðir til að slá nema umsókn liggi fyrir.

Umsóknarfrestur er til 20. maí 2026

Gjald fyrir hvern slátt er kr. 5.000,-

Starfsmenn sveitarfélagsins áskilja sér rétt til að neita að slá einstaka garða ef m.a:

  • Mikið rusl er í garði
  • Úrgangur dýra er í garði
  • Aðgengi að garði er slæmt
  • Hættulegar eða óæskilegar aðstæður

Með von um gott samstarf í sumar.

Umsókn um garðslátt