Fyrsta vikan sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar
Fyrsta vika mín í starfi bæjarstjóra Suðurnesjabæjar er nú að baki og hún hefur svo sannarlega verið viðburðarík frá fyrsta degi. Móttökurnar sem ég hef fengið hafa verið einstaklega hlýjar og ég er innilega þakklát fyrir þær — það er ekki sjálfgefið að fá svona góðar viðtökur og ég finn sterkt fyrir því hversu vel er tekið á móti nýju fólki hér í samfélaginu.
Vikan einkenndist meðal annars af miklu umstangi í tengslum við almyrkvann, sem setti svip sinn á starfið þessa fyrstu daga og krafðist góðrar skipulagningar og samstarfs. Ég vil nota tækifærið og þakka starfsfólki bæjarins kærlega fyrir hversu frábærlega það stóð sig í kringum þann viðburð. Ég vil einnig þakka heimamönnum fyrir þeirra þátt í viðburðahaldi og þjónustu í tengslum við almyrkvann. Það sýndi svo sannarlega kraftinn sem býr í samfélaginu og hversu mikið við eigum af öflugu og flottu fólki.
Vikuna hef ég nýtt í að setja mig inn í hluta þeirra fjölbreyttu verkefna sem sveitarfélagið vinnur að og sat ég minn fyrsta bæjarráðsfund sem bæjarstjóri. Þar fékk ég góða innsýn í þau mál sem eru á dagskrá næstu misserin. Ég fór einnig í viðtöl hjá blaða-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum þar sem ég fékk tækifæri til að kynna mig og sveitarfélagið okkar og deila sýn minni á starfið sem framundan er.
Ég er byrjuð að kynnast stofnunum, starfsfólki og íbúum bæjarins og hef átt fjölmörg samtöl við gott fólk sem ber hag samfélagsins fyrir brjósti. Sú kynning hefur verið bæði gefandi og ánægjuleg. Það verður gaman að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem framundan eru í nánu samstarfi við íbúa, starfsfólk og kjörna fulltrúa næstu árin.
En það skiptast á skin og skúrir og við fengum því miður þær sorgarfregnir að ástkær starfsmaður okkar, hann Helgi Sigurbjörnsson, hafi verið bráðkvaddur í gær fimmtudaginn 13. ágúst. Ég vil fyrir hönd Suðurnesjabæjar votta fjölskyldu hans, vinum og samstarfsfólki innilega samúð.
Farið vel með ykkur og hugsum vel um hvort annað næstu daga.
Alexandra Jóhannesdóttir
Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar