Fara í efni

Ert þú með viðburð þann 12. ágúst tengt almyrkvanum? Láttu okkur vita!

Ert þú með viðburð þann 12. ágúst tengt almyrkvanum? Láttu okkur vita!

Almyrkvinn þann 12. ágúst mun laða að fjölda gesta til Suðurnesjabæjar og því er kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki, félagasamtök og aðra að standa fyrir viðburðum eða hafa sérstaka opnun þennan dag.

Við hvetjum alla sem hyggjast bjóða upp á eitthvað skemmtilegt – hvort sem það er opið hús, tónlist, sýningar, leiðsögn, veitingar, fjölskylduviðburðir eða annað – til að láta okkur vita.

Viðburðirnir verða kynntir á heimasíðu Suðurnesjabæjar og á samfélagsmiðlum sveitarfélagsins og verða þannig hluti af heildarupplifun íbúa og gesta þennan dag.

Hvernig skrái ég viðburð?

Við hvetjum ykkur til að senda upplýsingar sem fyrst svo hægt sé að kynna viðburðina með góðum fyrirvara.

Matarvagnar og sölubílar

Enn eru laus stæði fyrir matarvagna og sölubíla við Byggðasafnið á Garðskaga þann 12. ágúst.

Upplýsingar

  • Stæðagjald er 15.000 kr. Félagasamtök mega hafa samband við okkur fyrir nánari upplýsingar.
  • Aðgangur að rafmagni er innifalinn.
  • Söluaðilar skulu hafa öll tilskilin leyfi samkvæmt lögum og reglum.
  • Söluaðilar bera sjálfir ábyrgð á uppsetningu, öryggi og frágangi síns svæðis.

Skráning

Við hvetjum áhugasama til að bóka pláss sem allra fyrst.

Nánari upplýsingar og umsóknir berast á afgreidsla@sudurnesjabaer.is.