Fara í efni

Breyting á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034

Breyting á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034

Breyting á íbúðasvæði ÍB-10 og OP-2, Skerjahverfi

Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samþykkti 4. mars 2026 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Suðurnesjabæjar 2022-2034 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða breytingu á þéttbýlisuppdrætti Sandgerðis og stærðartöflum í greinargerð aðalskipulags. Ekki er um að ræða breytingar á stefnumörkun aðalskipulagsins í neinum málaflokkum. Breytingin byggir á tillögu um breytingu á deiliskipulagi Skerjahverfis þar sem mörk skipulagssvæðis stækka lítillega til austurs. Með breytingunni eykst íbúðafjöldi og er þar með brugðist við aukinni þörf á minni íbúðum í fjölbýli á kostnað sérbýlis.

Breytingin hefur verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til skipulagsfulltrúa Suðurnesjabæjar og er tillagan aðgengileg á skipulagsgátt HMS, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 503/2026


Suðurnesjabæ 5. ágúst 2026.

Jón Ben Einarsson skipulagsfulltrúi