Almyrkvinn – allar helstu upplýsingar fyrir 12. ágúst
Nú eru aðeins tveir dagar í almyrkvann sem verður meðal annars sýnilegur yfir Reykjanesskaga miðvikudaginn 12. ágúst. Búist er við miklum fjölda gesta í Suðurnesjabæ og því er mikilvægt að íbúar og gestir kynni sér vel þær upplýsingar sem liggja fyrir um umferð, bílastæði, þjónustu og fleira.
Við hvetjum fólk til að njóta almyrkvans í heimabyggð
Við hvetjum íbúa Suðurnesjabæjar sérstaklega til að nýta það einstaka tækifæri að geta upplifað almyrkvann í sínu eigin nærumhverfi.
Þeir sem vilja fara á sérstakt áhorfssvæði geta meðal annars gengið að Sjávarbraut í Sandgerði eða út á Garðskaga.
Við hvetjum fólk eindregið til að ganga, hjóla eða nýta aðra ferðamáta en einkabílinn. Með því getum við öll lagt okkar af mörkum til að lágmarka bílaumferð og tryggja að umferð og viðbragðsaðilar komist greiðlega leiðar sinnar.
Umferð og lokanir
Gerðar verða tímabundnar breytingar þennan dag á umferð vegna þess mikla fjölda sem búist er við á svæðinu.
- Einstefna frá Nesvegi að Sandgerði frá kl. 11:00. Einstefnan liggur frá Nesvegi/Hafnarvegi og endar við lokunarpóst sem verður staðsettur við Skerjabraut.

- Skagabraut verður einstefna út að Garðskaga frá kl.12:00. Umferð til baka verður um Útgarðsveg og þaðan aftur inn á Garðskagaveg.

- Sjávarbraut í Sandgerði verður lokuð fyrir bílaumferð frá kl.12:00. Gangandi vegfarendur geta því notið almyrkvans þar.

Bílastæði og rútur
Gjaldskyld bílastæði verða í boði á tveimur túnum á Garðskaga í samstarfi við Parka. Á Víðisplaninu verður sérstakt stæði fyrir rútur.
Við hvetjum gesti til að nýta skilgreind bílastæði og forðast að leggja þannig að það hindri umferð eða neyðarleiðir.
Salernisaðstaða
Salernisaðstaða verður í boði á:
- Garðskaga
- Við Sjávarbraut í Sandgerði
Fjölbreytt dagskrá og viðburðir
Ýmis fyrirtæki og aðilar í Suðurnesjabæ bjóða upp á dagskrá, veitingar og afþreyingu í tilefni dagsins.
- Kaffi Gola: Veitingasala í tjöldum, tónleikar í Hvalsneskirkju og fleira.
- Golfklúbbur Sandgerðis: Hægt að bóka tíma í golf, veitingasala opin öllum.
- Byggðasafnið á Garðskaga: Þar er sýning um sólmyrkvann. Tónleikar frá kl.18:00-20:00 með hljómsveit Guðmundar Ingólfssonar. Matarbílar á svæðinu.
- Brim Bistro: Bjórtjald, matartjald, leikir, söngur og fleira.
- Daníel Hjálmtýsson – Sungið til sólarinnar: Tónleikar við Norðurgötu í Sandgerði.
Öryggi og góð umgengni
Mikilvægt er að allir sem ætla að fylgjast með almyrkvanum noti viðurkennd sólmyrkvagleraugu eða annan viðeigandi búnað. Við vekjum athygli á að hægt er að kaupa slík gleraugu á Byggðasafninu á Garðskaga.
Til að tryggja sem besta upplifun fyrir alla biðjum við gesti að:
- Fylgja leiðbeiningum lögreglu, björgunarsveita og starfsfólks á svæðinu.
- Leggja aðeins á merktum bílastæðum og halda neyðarleiðum opnum.
- Ganga vel um náttúruna og taka allt rusl með sér.
- Forðast notkun dróna yfir mannfjölda meðan á almyrkvanum stendur, þar sem þeir geta raskað upplifun annarra og skapað óþarfa öryggisáhættu.
Mætið tímanlega og verið viðbúin
Búast má við mikilli umferð bæði fyrir og eftir almyrkvann. Við hvetjum fólk til að mæta tímanlega, velja sér áhorfsstað fyrirfram og gera ráð fyrir töfum.
Nánari upplýsingar um almyrkvann, tímasetningar, öryggi og aðra hagnýta þætti má finna á upplýsingavef Sólmyrkva 2026, Ísland.is og hjá Visit Reykjanes.
Ef frekari upplýsinga er óskað má senda tölvupóst á afgreidsla@sudurnesjabaer.is eða hafa samband við Suðurnesjabæ í síma 425-3000.
Við hlökkum til að taka á móti íbúum og gestum og vonum að 12. ágúst verði eftirminnilegur dagur í Suðurnesjabæ!
|
Staður |
Lengd almyrkva |
Deildarmyrkvi hefst |
Almyrkvi hefst |
Almyrkvi í hámarki |
Almyrkva lýkur |
Deildarmyrkva lýkur |
|
Garður |
1m 43s |
16:47:01 |
17:47:52 |
17:48:44 |
17:49:35 |
18:47:43 |
|
Sandgerði |
1m 45s |
16:47:03 |
17:47:54 |
17:48:47 |
17:49:39 |
18:47:47 |