Fara í efni

Garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja sumarið 2024

Garðsláttur fyrir eldri borgara og öryrkja sumarið 2024
Eins og fyrri ár mun Suðurnesjabær bjóða eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í sveitarfélaginu upp á slátt í heimagörðum.
 

Þeir sem vilja njóta þessarar þjónustu þurfa að sækja um hana á sérstökum eyðublöðum fyrir 1. júní 2024, einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið afgreidsla@sudurnesjabaer.is.

Sláttutímabilið er frá byrjun júní og til loka júlí. Hver umsækjandi nýtur garðsláttar einu sinni en markmið er að slegið verði þrisvar sinnum hjá hverjum og einum, allt eftir samkomulagi og stöðu mannafla hjá sveitarfélaginu. Ekki verður farið inn á lóðir til að slá nema umsókn liggi fyrir.

Gjald fyrir hvern slátt er kr. 3.300,-

Með von um gott samstarf í sumar.

Umsókn um garðslátt