Fara í efni

Samhjól Team Rynkeby á Suðurnesjum

Samhjól Team Rynkeby á Suðurnesjum

Liðsfélagar í Team Rynkeby á Íslandi bjóða til samhjóls fimmtudaginn 14. maí.
Samhjólið er liður í fjáröflun liðsins er snýr að umsýslu við ferðalagið, eða kaffisjóðinn þ.e. ágóðinn rennur í sjóð sem nýtist m.a. við leigu flutningabíla fyrir búnað sem ferðast með liðinu í gegnum Evrópu, fæði og annað tilfallandi sem nauðsynlegt er.
Samhjólið hefst í Suðurnesjabæ þar sem hugmyndin er að hjóla Suðurnesjahring, þ.e innan Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar – Sandgerði-Garður-Keflavík-Njarðvík - Sandgerði.
Hjólaleiðin er um 45 km en hægt er að lengja leiðina fyrir þá sem það vilja og taka krók út að Reykjanesvita þannig að heildarvegalengd endar í um 65 km.
Þjónustulið Team Rynkeby mun fylgja hópnum með á þessu ferðalagi og gert ráð fyrir kaffistoppi og grilli í lok ferðar.
Kl. 9.00 – Lagt af stað frá Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði.
Hjólað frá Íþróttamiðstöðinni í Sandgerði. Stopp við Garðskagavita og þaðan er hjólað inn í Keflavík áleiðis til Njarðvíkur að Fitjum. Við gerum ráð fyrir kaffistoppi í Reykjanesbæ. Þaðan liggur leiðin út í Hafnir þar sem þeir sem kjósa að hjóla að Reykjanesvita halda áfram sinni vegferð en aðrir fara svokallaða Ósabotnaleið að Stafnesi þar sem stoppað er við Kaffi Golu og Hvalsneskirkju áður en komið er aftur í Sandgerði.
Í Sandgerði verður boðið uppá grillaða hamborgara og pulsur fyrir þá sem vilja.
Verð í formi styrkja 5000 kr. sem leggjast inn á kaffisjóð hópsins 546-26-517 kt. 580216-0990.
Sundlaugin í Sandgerði er opin á Uppstigningardag ef einhver vill skella sér í sund að hjóli loknu.

 

Nánari upplýsingar