Fara í efni

Myndlistarsýning Braga Einarssonar

Myndlistarsýning Braga Einarssonar

Opið kl. 13:00 - 17:00 laugardag og 12:00 - 17:00 sunnudag.

Byggðasafnið á Garðskaga, Skagabraut 100, Garði í Suðurnesjabæ.
 
Bragi Einarsson mynlistamaður úr Garði verður með sýningu á málverkum sínum um Safnahelgina á Byggðasafninu á Garðskaga. Bragi mun standa við trönurnar og mála og spjalla við gesti inni á safninu laugardaginn 11. október frá kl. 13-17. Sölusýning.
 
Bragi Einarsson er vel þekktur fyrir myndlist sína, sérstaklega vatnslitaverk. Hann málaði m.a. vatnslitamyndir af vitunum fimm í Suðurnesjabæ sem síðan hafa verið prentaðar sem vönduð póstkort og fást á Byggðasafninu á Garðskaga.