Fara í efni

Mozart við kertaljós í Hvalsneskirkju

Mozart við kertaljós í Hvalsneskirkju

Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og gestur er Gillian Haworth óbóleikari.

Á dagskránni eru þrjú glæsileg kammerverk eftir Mozart en það eru Kvartett fyrir óbó og strengi í F Dúr kv 370, Kvartett fyrir strengi í C-Dúr kv.465 og Kvartett fyrir klarinettu og strengi í Es Dúr kv 380.
Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum” eftir Mozart.

Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og er einungis lýst með kertaljósum. Aðgangseyrir er kr.3.500 og frítt inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.

Kakó, randalína og piparkökur eftir tónleika í Kaffi Golu.

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.