Fara í efni

Jólalög í bland

Jólalög í bland

Daníel Hjálmtýsson og Jóna Særún Sigurbjörnsdóttir setjast niður í Hvalsneskirkju þann 19. desember og flytja hlý jólalög í bland við ábreiður af lögum Leonard Cohen og fleiri.
 
Daníel hefur vakið mikla athygli víðsvegar fyrir eigin tónlist en hann sendir frá sér sína aðra breiðskífu á næsta ári. Þá hafa jólatónleikar hans í IÐNÓ í Reykjavík og m.a. í Hvalsneskirkju vakið sérstaka athygli, einna helst vegna flutnings Daníels á lögum Leonard Cohen. Hefur Daníel flutt lög Cohen við ýmis tilefni fyrir troðfullum sal um allt land síðasta áratuginn.
Jóna Særún Sigurbjörnsdóttir, unnusta Daníels, hefur komið fram á nokkrum tónleikum hans sem sérstakur gestur en hún nemur söng við Tónlistarskóla Sandgerðis við góðan orðstír.
Parið býr í Suðurnesjabæ ásamt syni þeirra Hrafni Viðari Eyþórssyni og hundinum Ringo en sá fyrrnefndi er einnig nemandi við Tónlistarskóla Sandgerðis og verður sérstakur gestur kvöldsins.
 
Við hlökkum til að sjá ykkur
 
Miðasala er hafin á Tix.is og er miðaverð 2.500 krónur. Einnig er hægt að greiða við hurð.