Fara í efni

Daníel Hjálmtýsson - Sungið til sólarinnar

Daníel Hjálmtýsson - Sungið til sólarinnar

Íslenski tónlistarmaðurinn Daníel Hjálmtýsson leikur lög af komandi breiðskífu sinni, A Piece of Broken Glass auk eldri laga við almyrkvann 12. ágúst nk.

Tónleikarnir eru styrktir af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og fara fram í bakgarði Daníels að Norðurgötu í Sandgerðishluta Suðurnesjabæjar, þar sem nóg er pláss og útsýni óhindrað. Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin. Tónleikarnir hefjast við upphaf deildarmyrkva 16:47 og lýkur þeim laust fyrir 18:00.

Nánar má lesa um feril og störf Daníels í tónlistarlífinu á heimasíðu Daníels sem finna má hér: https://lnk.bio/DanielHjalmtysson