Bókagull-höfundar kynna nýjar bækur
18. nóvember
20:00-21:30
Bókasafn Suðurnesjabæjar
Bókagull-höfundar kynna nýjar bækur
Þriðjudaginn 18. nóvember frá kl. 20-21:30 kynna skáldin Gunnhildur Þórðardóttir, Marta Eiríksdóttir og Skúli Thoroddsen nýjar bækur sínar á Bókasafni Suðurnesjabæjar.
Verið öll hjartanlega velkomin!
- Gunnhildur Þórðardóttir, myndlistarmaður, skáld og kennari frá Suðurnesjum, les ljóð úr nýrri ljóðabók sinni ,,Vetrarmyrkur”, sem er sjöunda ljóðabók höfundar. Gunnhildur er stofnandi lista - og ljóðahátíðarinnar Skáldasuðs og Myndlistarskóla Reykjaness. Hún hlaut ljóðaverðlaunin Ljósberann árið 2019.
- Marta Eiríksdóttir er einnig frá Suðurnesjum og er íslenskukennari að mennt. Hún starfar í dag sem jógakennari og bókaútgefandi eigin bóka hjá Dirrindí. Marta les úr sjöundu bók sinni ,,Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins” sem er þroskasaga keflvískrar stúlku.
- Skúli Thoroddsen er lögfræðingur að mennt og bjó lengi á Suðurnesjum. Hann les úr nýjustu bók sinni ,,Dorgað í djúpi hugans” sem er athyglisverð uppvaxtarsaga um veröld sem var á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Þetta er önnur bók Skúla en hann hefur áður gefið út sögulega skáldsögu og ljóðabók.
Höfundar selja og árita bækur í lok viðburðar.