Fara í efni

Fræðsluráð

33. fundur 13. maí 2022 kl. 08:15 - 10:00 í Ráðhúsinu í Sandgerði
Nefndarmenn
  • Elín Björg Gissurardóttir formaður
  • Jónína Magnúsdóttir aðalmaður
  • Sverrir Rúts Sverrisson aðalmaður
  • Elín Frímannsdóttir aðalmaður
  • Jóna María Viktorsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Ásta Guðný Ragnarsdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Guðbjörg M. Sveinsdóttir Deildarstjóri fræðsluþjónustu
Dagskrá

1.Skóladagatal Tónlistarskólans í Garði

2203041

Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Tónlistarskólans í Garði fyrir skólaárið 2022-2023.

2.Skóladagatal Sólborgar

2203041

Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Leikskólans Sólborgar fyrir skólaárið 2022-2023

3.Skóladagatal Tónlistarskóla Sandgerðis

2203041

Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Tónlistarskóla Sandgerðis fyrir skólaárið 2022-2023

4.Skóladagatal Gefnarborgar

2203041

Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Leikskólans Gefnarborgar fyrir skólaárið 2022-2023

5.Reglur um stuðning við starfsfólk í leik- og grunnskólum Suðurnesjabæjar sem fara í réttindanám

1905056

Fræðsluráð leggur til að samþykktar verða endurskoðaðar reglur fyrir starfsfólk í leik- og grunnskólum Suðurnesjabæjar sem fara í réttindanám. Mikilvægt er að skoða hvort þessum reglum þurfi að fylgja fjármagn til að koma til móts við skólana sem eru með marga nema í réttindanámi.

6.Samrómur

2003050

Fræðsluráð óskar Gerðaskóla og Sandgerðisskóla til hamingju með framúrskarandi árangur í Samrómi en viðurkenningar voru afhentar á Bessastöðum 16.mars s.l.

7.Skynreiða að leiðarljósi í námi barna

2203128

Fræðsluráð óskar starfsfólki leikskólans Gefnarborgar til hamingju með verkefnið Skynreiða að leiðarljósi í námi barna, en fjallað var um það í Skólaþráðum 4.mars s.l.

8.Skólaslit, einstök upplifun

2003050

Verkefnið Skólaslit fær IBBY verðlaunin 2022. IBBY eru alþjóðleg samtök, The International Board on Books for Young People. sem starfrækt eru í 60 löndum. Fræðsluráð óskar öllum sem komu að verkefninu Skólaslit til hamingju með verkefnið, en fjallað var um það í Skólaþráðum 18.mars s.l.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Getum við bætt efni síðunnar?