Fara í efni

Ný heimasíða og jafnlaunavottun

Ný heimasíða og jafnlaunavottun

Í dag fagnaði Suðurnesjabær tveimur mikilvægum áföngum í starfsemi sinni. Annars vegar var opnuð ný heimasíða Suðurnesjabæjar og hins vegar fékkst formleg staðfesting á því að Suðurnesjabær hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt kröfum ÍST 85:2012.

Heimasíða Suðurnesjabæjar er unnin í samstarfi við fyrirtækið Stefnu og á næstu dögum mega íbúar og aðrir búast við stöðugum breytingum á síðunni, bæði hvað varðar útlit og upplýsingar. Nú er m.a. hægt að senda ábendingar og fyrirspurnir í gegnum síðuna og senda inn upplýsingar um viðburði í sveitarfélaginu sem þá rata inn á viðburðadagatal Suðurnesjabæjar.

Við hvetjum íbúa til þess að senda okkur góðar og gagnlegar ábendingar og upplýsingar um viðburði.

Jafnlaunakerfi Suðurnesjabæjar nær til allra starfmanna sveitarfélagsins og samanstendur m.a. af skjalfestum verkferlum, launaviðmiðum og greiningum. Formlegri úttekt á jafnlaunakerfi Suðurnesjabæjar lauk í maí en fyrirtækið Versa vottun framkvæmdi úttektina. Vottunin er mikilvægur áfangi Suðurnesjabæjar í vegferð sinni að bættu jafnrétti og getur nú stolt notað jafnlaunamerkið .

Meðfylgjandi mynd sýnir Magnús Stefánsson, bæjarstjóra og Einar Jón Pálsson, forseta bæjarstjórnar opna nýja heimasíðu Suðurnesjabæjar.