Málið okkar – horft til framtíðar
Málið okkar – horft til framtíðar
14. ágúst 2020
Aukin áhersla á málþroska, orðaforða og hljóðkerfisvitund í Suðurnesjabæ
Fræðsluþjónusta Suðurnesjabæjar ásamt leikskólum í Suðurnesjabæ og Vogum vinna nú að verkefni í samvinnu við Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðing.
Markmið verkefnisins er að auka áherslur á málþroska, orðaforða og hljóðkerfisvitund í skólastarfinu.
Bryndís hefur unnið að því að setja upp ítarleg markmið fyrir verkefnið bæði út frá eigin reynslu og grunnlínumælingum sem gerðar voru í leikskólunum núna í vor.
Verkefnið er tilraunaverkefni sem verður í stöðugri þróun.
Skipaður hefur verið verkefnastjóri í hverjum leikskóla sem heldur utan um verkefnið og vinnur að því að fylgja markmiðunum eftir í skólastarfinu.
Á myndinni eru verkefnastjórar frá leikskólum ásamt Bryndísi Guðmundsdóttur og starfsmenn fræðsluþjónustu.