Fara í efni

Laust starf í Gerðaskóla

Laust starf í Gerðaskóla

Í Gerðaskóla eru um 250 nemendur. Við skólann starfa áhugsamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru virðing, ábyrgð, árangur, ánægja. Í Gerðaskóla leggjum við áherslu á að skapa öruggt umhverfi þar sem öllum líður vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Tómstundafræðingur(eða sambærileg menntun) - umsjón með frístund/Skólaseli

Gerðaskóli óskar eftir að ráða tómstundafræðing(eða sambærileg menntun) til að sjá um og skipuleggja frístundastarf skólans. Í frístund er leitast eftir að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Leiðarljós frístundar er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskist í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Auglýst er eftir starfsmanni í 60% starf. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið eva@gerdaskoli.is. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Umsóknarfrestur er til 16. desember 2021.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050.