Fara í efni

Jólaljós, fullveldisdagurinn og dagur íslenskrar tónlistar

Jólaljós, fullveldisdagurinn og dagur íslenskrar tónlistar

Í dag, fyrsta desember, voru jólaljósin tendruð á stærstu jólatrjánum í báðum hverfunum okkar, Sandgerði og Garði. Brugðið var út af vananum á þessum óvenjulegu og skrýtnu tímum en upphaflegu áætlanirnar gerður ráð fyrir því að íbúar söfnuðust saman við trén og gerðu sér glaðan eftirmiðdag við leik og söng. Þá var einnig áætlað að halda upp á Fullveldisdaginn með sérstakri dagskrá.

Arnar Snær Helgason úr Sandgerðisskóla og Stefanía Líf Birkisdóttir úr Gerðaskóla tendruðu ljósin á jólatrjánum með Magnúsi Stefánssyni, bæjarstjóra í morgun en ljósin voru tendruð klukkan 8.20 í Sandgerði og kl.9.00 í Garði. Nemendur 1.-7. bekkja beggja skóla fengu að taka þátt í skemmtuninni en eins og reglur segja til um mega þessir nemendur hittast og blandast saman. Þrátt fyrir það var gætt að öllum sóttvörnum og hélt hver bekkur sig saman og átti sitt svæði til að standa á. Allir nemendur stóðu sig með stakri prýði.

Í dag fögnuðum við einnig Degi íslenskrar tónlistar og því þótti við hæfi að fá bræðurna Jón Jónsson og Friðrik Dór í heimsókn en þeir mættu galvaskir á svæðið og tóku nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra sem tóku vel undir með þeim.

Um var að ræða skemmtilega stund á skrýtnum tímum.

Við viljum koma þökkum til allra þeirra sem hjálpuðust að við skipulagningu á þessum viðburði, bæði starfsmönnum Suðurnesjabæjar og íbúum sem lögðu hönd á plóg.

 Gleðilega aðventu og gangi okkur öllum áfram vel í baráttunni og virðum sóttvarnir – Við getum þetta saman!