Fara í efni

Gerðaskóli auglýsir lausa stöðu

Gerðaskóli auglýsir lausa stöðu

Umsjónarkennari á unglingastigi

Í Gerðaskóla verða um 250 nemendur næsta skólaár. Við skólann starfa áhugasamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru virðing, ábyrgð, ánægja, árangur. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.

Við leitum að einstaklingum með réttindi í grunnskóla, sem eru metnaðarfullir, góðir í mannlegum samskiptum, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl og skulu umsóknir berast á netfangið eva@gerdaskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050