Bókalúga og heimsending á bókum
Bókalúga og heimsending á bókum
24. nóvember 2020
Til viðbótar við bókalúguna sem nú er opin frá Bókasafni Suðurnesjabæjar í Sandgerði verður nú boðið upp á heimsendingu á bókum fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.
Pantanir á bókum eru með sama hætti og með bókalúguna, þ.e. hægt er að panta bækur með því að hafa samband í gegnum facebook síðu safnsins, með því að hringja í síma 425 3110 eða senda tölvupóst á netfangið bokasafn@sudurnesjabaer.is.
Íbúar beggja hverfa eru hvattir til þess að nýta sér þessa þjónustu.
Safnið verður opið með þessum hætti mánudaga til fimmtudaga frá kl. 14:30-17:30 og er miðað við að akstur bóka verði á miðvikudögum eftir lokun á safninu.
Sýnum ábyrga hegðun – lesum eins og við getum og sameinumst í baráttu gegn Covid-19