Fara í efni

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar í dag klukkan 11:00, föstudaginn 9. apríl.

Farið verður yfir stöðu mála varðandi eldgosið á Reykjanesskaga. Ýmsar spurningar hafa komið upp varðandi gasmengun sem berst frá gosstöðinni, bæði í byggð og á staðnum.  Á fundinum verður fjallað um áhrif gosmengunar á heilsu fólks, hvar hægt er að finna upplýsingar og hættur sem ber að varast á staðnum.

Aðilar sem geta varpað ljósi á ýmislegt er varðar eldgosið verða á fundi dagsins.  Þar verða Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn almannavarna, Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu Veðurstofu Íslands, Magnús Tumi jarðeðlisfræðingur frá HÍ og Gunnar Guðmundsson lungnalæknir.